Þessi Saga er þess virði að lesa :D

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég
að kvarta í hljóði 'Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að
fara á svo marga staði'.

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi
að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.

allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða
verðin,hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng.
Eftir smátíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem
hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist
svo sorgmæddur.

Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á
honum'amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?' Gamla
konan svaraði 'þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín'
Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig
um. Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans
og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. 'Þetta er dúkkan sem
systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.Hún var svo viss
um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna
til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
sorgmæddur 'Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er
núna.

Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer
þangað'. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.'Systir mín er
farin til þess að vera með Guði. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til
Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og
gefið systur minni hana'.

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði
'Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.Ég bað hann um að
bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni. Svo sýndi hann mér fallega mynd
af honum þar sem hann var hlægjandi. 'Ég vil líka að mamma taki þessa mynd
með sér svo að hún gleymi mér aldrei'. Ég elska mömmu mína og ég vildi óska
að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera
hjá litlu systur minni'

.Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
teygði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
strákinn 'en ef við athugum aftur í vasann til að tékka hvort að þú eigir
nógan pening?' Allt í lagi sagði strákurinn 'ég vona að ég eigi nóg'

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja
smá afgangur.Litli strákurinn sagði 'Takk Guð fyrir að gefa mér nógan
pening.

Svo leit hann á mig og sagði í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um
að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa
systur minni. Hann heyrði til mín. Mig langaði líka að eiga nógan pening til
að kaupa hvíta rós handa mömmu,en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en
hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka'. Sko mamma elskar hvíta rós'.

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla
strákinn.Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan maður keyrði
drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í.

Litlastelpan dó samstundis en mamman var í dái. Fjölskyldan varð að ákveða
hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan
myndi ekki vakna úr dáinu. Var þetta fjölskylda litla stráksins?

Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan
hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af
hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér í
seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.

Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
stráknum og dúkkuna á brjóstinu. Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa
breyst til eilífðar.

Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann
dag í dag,erfitt að ímynda sér.

Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.

Þessi saga snart mig sérstaklega þar sem ég lenti sjálf í bílslysi þar sem drukkin maður keyrði mig í klessu....

HUGSIÐ ÁÐUR EN ÞIÐ SETJIST UNDIR STÝRI  DRUKKINN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Líney

knús  til þín  Vibba  mín

Líney, 18.11.2008 kl. 15:33

2 Smámynd: Vilborg Auðuns

Silla.... já þessi saga snart mig og ég varð að deila henni með ykkur.

Kærleiksknús

Vilborg Auðuns, 18.11.2008 kl. 15:46

3 Smámynd: Vilborg Auðuns

Líney mín dugnaðarforkur..... stórt kærleiksknús til þín

Vilborg Auðuns, 18.11.2008 kl. 15:47

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hef lesið hana oft áður, en það er með þessa sögu eins og jólamyndina sem er sýnd á hverjum aðfangadegi, um manninn sem var svo nískur að hann var búin að missa alla vini, sú mynd hittir ætíð í mark og maður tárast með börnunum  ár eftir ár.
Ljós og kærleik til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.11.2008 kl. 14:09

5 Smámynd: Vilborg Auðuns

Takk Milla mín

Knús

Vilborg Auðuns, 19.11.2008 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband