Jæja

Nú er að koma að því, gallblöðruaðgerð á morgun. Og mér er byrjað að kvíða fyrir, ég hef farið í margar aðgerðir og mér kvíðir alltaf jafn mikið fyrir. Svo á ég eftir að fara í aðra aðgerð í endann nóvember mikið verð ég fegin þegar þetta brölt mitt verður búið.

Ég vaknaðu kl. 7 í morgun fékk mér sheikinn minn og dreif mig í sund um áttaleitið og það var yndislegt, laugin hér í Sandgerði er dásamleg.  En mikið ósköp er ég syfjuð núna.... langar mest að skríða upp í rúm. En ég þarf að fara út og þrífa gluggana því ég hætt að sjá út seltan er svo mikil.  Svo ætla ég að skella mér í Miðhús á eftir og föndra eitthvað.... reyna að dreifa huganum. Svo á ég að mæta í mælingu um fjögurleitið, það verður spennandi skildi ég eitthvað hafa grennst. Cool í síðustu mælingu hafði ég grennst um kíló og 33 cm. var ekkert smá stolt af mér.

Ég fór að versla um daginn og mikið rosalega hefur verð á matvælum hækkað og þá var ekki búið að bæta þessum 6% við.............sem mun pottþétt fara út í verðlagið. Hvers eigum við að gjalda almenningur í landinu.

Kærleiksknús til allra sem lesa þetta litla blogg mitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku stelpan þetta verður búið áður en þú veist af og ég held bara að þú sért rosa dugleg. Miðhús næst er þú ferð þangað þá bið ég að heilsa fólkinu.
ég þekki alla þarna og einu sinni, eða 1992 var ég að hugsa um kaffi fyrir unglingana mína í Miðhúsum, kallaði þau alltaf unglingana mína.
Knús til þín ljúfust og gangi þér vel.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.10.2008 kl. 20:32

2 Smámynd: Líney

Ha  fara í Miðhús? Er það ekki  bara fyrir þá sem þar búa?

Æ já skil   kvíðahnútin hjá þér,alltaf smeyk þegar ég  þarf að fara  í eitthvað svona,farðu bara vel með þig og reyndu að  hugsa um eitthvað skemmtilegt...knús á þig

Líney, 29.10.2008 kl. 20:35

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Miðhús er fyrir alla konur og karla sem eru komin á unglingaaldurinn og eða eru öryrkjar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.10.2008 kl. 20:41

4 Smámynd: Líney

Engin sagt mér það fyrr en núna,mig vantar svo félagsskap

Líney, 29.10.2008 kl. 20:55

5 Smámynd: Vilborg Auðuns

Milla varst þú að vinna í Miðhúsum ég hef stundum leyst hana Erlu perlu af í eldhúsinu..... Ég leigði af dóttur hennar Kollu upp á uppsalavegi og þá kynntist ég henni og hún dró mig út úr húsi og í föndrið og að bjargaði alveg minni sálarheill að komast inn um svona yndislegt fólk.

Kærleiksknús til þín Milla mín

Líney  Þú verður að koma í Miðhús þú myndir örugglega fíla þig í tætlur, ég var á námskeiði þar um daginn í postulínsmálun.... og athugaðu föndur kennslan kostar ekki neitt. Miðhús eru opin á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá 13 - 16. Svo á fimmtudagsmorgun frá 10-12 er perluklúbbur starfandi.

Hlakka til að sjá þig í Miðhúsum....

Kærleiksknús til þín Líney mín

Vilborg Auðuns, 29.10.2008 kl. 20:57

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég held að ég sé ekki að skrökva spurðu bara eða bara mættu á staðinn.
Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.10.2008 kl. 20:58

7 Smámynd: Líney

Þú verður að  taka  mig  með einhvern daginn,ekki sjens  að ég labbi bara sí sona   þangað inn,knús

Nógu erfitt var að fara  á námskeiðið í Nýrri vídd,leirinn,þekkti engan, fyrrv nágranni þinn dró mig þangað

Líney, 29.10.2008 kl. 21:07

8 Smámynd: Vilborg Auðuns

Já ég skal sko draga þig með mér Líney ekki spurning.

kíktu svo á www.123.is/hvot þetta er heimasíða kvenfélagsins og okkur langar alveg rosalega til að fá þig með okkur..... og það er hrikalega gaman hjá okkur.

Kærleiksknús til þín

Vilborg Auðuns, 29.10.2008 kl. 22:07

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Vibba mín ég var að vinna í Miðhúsum og það var sko fjör á bæ, sungið, spilað og föndrað. Og þú verður að draga Líney með þér. kærleik til kollu, mamma hennar var vinkona mín.
Knús og góðan bata. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.10.2008 kl. 07:09

10 Smámynd: Líney

Hugsa til þín í dag,vona  að allt gangi vel,knús

Líney, 30.10.2008 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband