Færsluflokkur: Dægurmál
Gæinn sem geymir aurinn minn.
Ég finn það gegnum netið
að ég kemst ekki inn
á bankareikninginn,
en ég veit að það er gæi
sem geymir aurinn minn,
sem gætir alls míns fjár,
og er svo fjandi klár,
kann fjármál upp á hár,
býður hæstu vextina,
og jólagjöf hvert ár.
Ég veit hann axlar ábyrgð,
en vælir ekki neitt,
fær þess vegna vel greitt,
hendur hans svo hvítþvegnar
og hárið aftursleikt.
Þó segi' í blöðunum
frá bankagjaldþrotum
hann fullvissar mig um:
Það er engin áhætta
í markaðssjóðunum.
Ég veit að þessi gæi
er vel að sér og vís;
í skattaparadís
á hann eflaust fúlgur fjár,
ef hann kemst á hálan ís.
Því oftast er það sá,
sem minnstan pening á,
sem skuldin endar hjá. -
Fáir slökkva eldana,
sem fyrstir kveikja þá.
Finni Þór .
Október 2008.
Dægurmál | 27.10.2008 | 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skemmdir upp á tugi milljóna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 25.10.2008 | 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það voru miklu betri útskýringar hjá IMF heldur en hjá geira og imbu.
En hvar skildu þeir svo draga saman í ríkisrekstrinum??? það verður stóra spurningin.
Persónulega myndi ég byrja á eftirlaunafrumvarpinu, sendiráðunum, utanlandsreisum ráðherra.....og fleiri þáttum, þeir mega alls ekki draga úr heilbrigðiskerfinu, félagslagakerfinu og löggæslu landsins.
Mjög erfiðir tímar framundan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 24.10.2008 | 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lengi hefur nú verið til siðs að kaupa skrokka í heilu af bóndanum.
Og nú má það ekki
Með kjöt af heimaslátruðu í bílnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 21.10.2008 | 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Óska eftir 6 milljörðum dala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 20.10.2008 | 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þetta er hrikalegt ástand.......... mér líst ekki á hvernig þjóðfélagið er að verða.
Ég styð það heilshugar að lögreglumenn fá rafbyssur til notkunar sér til varnar og fjölga verður í röðum lögreglumanna.
Nú þarf að bregðast skjót við og ekkert hangs.....
Fólskuleg árás á lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 19.10.2008 | 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mótmæla Davíð Oddssyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 18.10.2008 | 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þjóðnýting Á lítilli eyju við heimsskautahjara býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð. Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara sem loforðum öfugt í kok hennar tróð. Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar táldrógu sannlega helvítis til. Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar gerðu þeir flottræflum sínum í vil. En frelsið er háðara boðum og bönnum en bláeygðir frjálshugar ímynda sér. Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum og nauðgað af útrásarvíkingaher. |
Dægurmál | 11.10.2008 | 23:51 (breytt 12.10.2008 kl. 18:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Það vex eitt blóm fyrir vestan
Það vex eitt blóm fyrir vestan,
og vornóttin mild og góð
kemur á ljósum klæðum
og kveður því vögguljóð.
Ég ann þessu eina blómi,
sem aldrei ég fékk að sjá,
og þangað horfir minn hugur
í hljóðri og einmana þrá.
Og því geng ég fár og fölur
með framandi jörð við il.
Það vex eitt blóm fyrir vestan
og veit ekki, að ég er til.
Ljóð Steins eru öll frábær.......... svo skrítið sem það er á ég ekki bók eftir hann.
Mikið langar mér vestur í djúp núna............. í friðin frá öllu þessu vesinni í sem er í þjóðfélaginu.
Dægurmál | 9.10.2008 | 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég fór á þriðjudaginn að hitta stelpurnar í A-Ö hópnum og það var svo gaman mikið hlegið og heimsmálin rætt og komust við að þeirri niðurstöðu að nú væri sko verið að taka til í heiminum og munum við koma stærri og sterkari út úr þessum hremmingum.
Nú er ég búinn að stunda heitapottinn í sundlauginni hér í Sandgerði af miklu kappi. Sundlaugin er frábær eftir endurbæturnar sem eru virkilega vel heppnaðar. Komnar tvær rennibrautir sem unga kynslóðin elskar. Mæli með því að fólk fái sér bíltúr í Sandgerði og fari í sund.
Nú skulum við íslendingar brosa, því lífið er yndislegt.
Dægurmál | 2.10.2008 | 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar