Fór í gallblöðru aðgerð á fimmtudaginn inn á HSS og gekk það alveg svakalega vel...... 7,9,13...... gallblaðran var handónýtt og full af steinum....... líklega hefur hún verið löngu búinn að segja starfi sínu upp þessi elska. Starfsfólkið á HSS er yndislegt og takk fyrir mig.
Mér líður eins og tíuhjóla trukkur hafi keyrt yfir mig en er samt öll að hressast. Vinkona mín kom til mín í gær og eldaði með mér þessi elska....... það var svo yndislegt að fá hana í heimsókn.
Nú sit ég fyrir framan tv og horfði á silfrið ææææ er orðin soldið þreytt á þessu jarmi........ það væri notalegra að fara út í fjárhús en að hlusta á þetta.
Svo var ég að fara yfir greiðsluseðlana frá bönkunum í gær og halló...... ég skulda þessum bönkum ekki neitt.... lánin sem ég tók voru í gömlubönkunum....... hvað ætli smáaletrið á skuldabréfinu segi hhhmmm ætli það geri ráð fyrir að bankarnir fari á hausinn....
Litli prinsinn minn er hjá pabba sínum og fór þangað á fimmtudaginn og fékk frí á föstudeginum í skólanum og var ekkert smá glaður með það. Nú kemur hann heim í dag þessi elska og mér er sko farið að hlakka til.
Hér kemur smá texti úr Secret:
Í stað þess að einblína á vandamál heimsins skaltu beina athygli þinni að kærleika, trausti, ást, hamingju, menntun og friði.
Bloggvinir
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æ gott að heyra að allt gekk vel og að þú sért að hressast,sendi þér kærleiksknús og óskir um góðan og skjótan bata
Líney, 2.11.2008 kl. 15:34
Vibba mín maður er bara fljótur að jafna sig eftir svona aðgerð, sko til þess að gera, það voru 83 steinar í minni gallblöðru rosa flottir átti þá í boxi þar til þeir voru orðnir að salla.
Vonandi getið þið Líney farið fljótt í Miðhús saman og gleymdu ekki að skila kveðju.
orku og ljós til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.11.2008 kl. 16:52
Gott að allt gekk vel elsku Vilborg mín, farðu vel með þig dúlla
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 22:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.